SKÁLDSAGA

Maður og kona

Sagan Maður og kona eftir Jón Thoroddsen kom fyrst út árið 1876, átta árum eftir lát Jóns og tuttugu og sex árum eftir útkomu fyrstu íslensku skáldsögunnar, Pilts og stúlku.  Sagan er á margan hátt svipuð og Piltur og stúlka, en þó má merkja að sá sem stýrir pennanum býr yfir meiri þroska.  Þrátt fyrir að Jón hafi ekki haft margar íslenskar fyrirmyndir til að byggja sögur sínar á, tókst honum ágætlega upp í þessum sögum.  Hann nær að draga upp skýra mynd af bændasamfélagi sinnar samtíðar, en það hefur helst verið fundið að því hvað aðalpersónurnar í sögunum séu daufar og skorti líf.  Hann bætir það þó upp með ýmsum aukapersónum.  Jóni tókst ekki að ljúka við Mann og konu en sagan stendur þó ágætlega fyrir sínu og er skyldulesning fyrir alla sem unna íslenskum bókmenntum.


HÖFUNDUR:
Jón Thoroddsen
ÚTGEFIÐ:
2013
BLAÐSÍÐUR:
bls. 426

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :